miðvikudagur, nóvember 22, 2006

Skafa skafa endalaust!!

Hæ allir, lítið að frétta af mér. Búinn að vera að vinna meira og minna síðan ég man eftir mér. Ég lenti í mjög vandræðalegu atviki hér um daginn.. Það var þannig að ég var einn heima og dreif mig í sturtu, sem er ekki frásögufærandi nema þegar ég reif upp baðherbergishurðina og ætlaði að þramma fram kviknakinn..... Nei, stóð þá ekki hann Sigurður frá Aðalbóli (pabbi Sindra og Davíðs) í forstofunni og missti andlitið ofan í annan skóinn sinn og ég um leið púnginn í parketið!! Og þá sagði Sigurður: Hva, hélstu að þú værir einn í heiminum? Uhh nei nei, bara átti ekki von á neinum... Svo var ekkert sagt meira þann daginn... Siggi náði að skafa andlitið uppúr skónum og sletta því framan sig og ég með marblett á púngnum.....!!! Í morgun hitti ég svo Sigurð í fyrsta skipti eftir þetta atvik.. Samtalið var svohljóðandi... Hann: Góðan daginn. Ég: Já, góðan dag. Hann: Bara fínasta veður? Ég: Jájá það er bara mjög stillt. Hann: Já. Ég: Jæja best að fara að sofa. Hann: Já...
Ég læt þetta duga í bili.. Betri er púngur í brók en í parketi....

mánudagur, september 25, 2006

C.S.I. Egilsstaðir

Hver skaut köttinn? Já það er komið upp eitt allavakalegt sakamál á Egilsstöðum. (eða svakisaki eins og má bera það fram á kínversku). Þannig standa málin að köttur margkunnugs manns hér í bæ kom alblóðugur heim af djammi lagðist fyrir og blæddi út. Við nánari skoðun réttarlækna kom í ljós að kötturinn hafði verið skotinn!! Hefur lögreglan hér í bæ nokkra grunaða um verknaðinn og þeir eru:

  • Gæsaskytta sem var á veiðum á Fljótsdalsheiði (notar svokallaða longshot byssu)
  • Nágranni kattareigandans (sem segist hafa skotið í átt að ketti sem var að veiða fugla)
  • Cat Stevens (kötturinn Stefán) sem lætur enga ketti veiða fugla á hans svæði leyfislaust

Já þetta gerir lögreglu virkilega erfitt fyrir en þeir geta víst ekki útilokað neinn af þeim. En hvað finnst ykkur? Hver af þessum er líklegastur til að hafa framið glæpinn?

föstudagur, september 01, 2006

Draumaparadís aldraða! Egilsstaðir...

Já eins og allir vita sem hafa sína búsetu á Egilsstöðum þá er búið að selja Valaskjálf. Það þýðir að þar verða ekki haldin fleiri böll eða fleiri skemmtanir. Café KHB var lokað með þeim afleiðingum að margir eru bókstaflega hættir að drekka. En takið eftir! góðu fréttinar eru að það er verið að byggja nýtt elliheimili!!! já flott!!. Í hjarta bæjarins á að rísa þetta 4stjörnu elliheimili með frábærri íþróttaaðstöðu, sundlaug og golfvelli. Vá fjúff ég sem hélt að Egilsstaðir væru að deyja!. Mjög stutt í alla þjónustu mitt á milli ÁTVR og Bónus hvað þarf gamla fólkið meira en það? Fínn stemmari að vera gamall kall mekkölvaður á golfvellinum að skjóta niður fólk í kring. En hvernig væri nú að finna húsnæði fyrir okkur unga fólkið til að skemmta sér? Einhverjar hugmyndir?....
segir hver drulluflott sjálf!!

mánudagur, júlí 17, 2006

Blaðinu snúið við...

Halló Benni heiti ég og ég á heimasíðu. Er að spá í að segja heimasíðunni upp og fá mér kærustu í staðinn!! Hef nú ekki nennt að færa hér inn fréttir af mér uppá síðkastið en ætla mér nú að skrifa nokkrar línur. Ég er til dæmis hættur að drekka, já ég brá mér inná Vog og dvaldi þar í 12daga. Þetta var orðið gott hjá mér og áfengi á bara alls ekki við mig, og tel mig vera kominn í hóp betri manna. Til dæmis má nefna Dabba Skúla (Kónginn), Ingvar (Klikkalinginn), Alla (Tarfinn), Gísla (vantar viðurnefni) og Steina (Biðilinn). Allt saman eru þetta ágætis kappar og fitta ég þess vegna vel inní hópinn. En ég ætla nú ekki að hafa þetta lengra í bili.. bless

laugardagur, maí 06, 2006

Júlía það ER til sleipiefni!!

Jæja nú er komin sú stund að færa hér inn á þessa síðu það sem hefur gerst í lífi lífsglaða vörubílstjórans undanfarið. Ég skráði mig inná einkamal.is bara svona að ganni, þetta er mjög gaman maður er kannski búinn að vera að tala við einhverja stelpu eitthvað og bara allt í lagi en svo sendir hún mynd!!! Og maður svona OJ BARA mæli með því að þú hættir á einkamál og farir í megrun í staðinn. En þetta á nú sem betur fer bara við svona 80% kvenna þarna inni svo að það eru nokkrar í lagi :) Við skelltum okkur suður um síðustu helgi, ég Hjörtur, Steini, Kolla og Begga. Það var mjög gaman að djamma í bænum með Steina, Júlíu og Eika þar sem Steini hafði athygli allra kvennmanna á svæðinu, ok jú ég fékk nú smá :) Fórum í partý á Gleðvelli 3 á Selfossi til Ásu og Evu það var alveg fínt partý og gekk á með miklum veggjakrotum og taekwando spörkum uppí kjálkann á Beggu! Það var reyndar alveg óvart þar sem bróðir minn æfir taekwando og drekkur bjór um helgar þá á hann til með að kunna sig ekki nálægt stelpum og missir sig gjörsamlega og sparkar þær hiklaust í kjálkann!!!. Á Sunnudeginum fórum við svo í húsdýragarðinn með Hjört og Steina. Steini var búinn að grenja utan í okkur alla helv.. helgina með að fara svo við ákváðum að gleðja hans hjarta og auðvitað Hjört líka :) Já það má með sanni segja að helgin hafi verið allsrosaleg í þetta skiptið og enduðu allir þreyttir og helir á húfi heim nema Begga....

fimmtudagur, apríl 13, 2006

Til hamingju Egilsstaðir!

Hvað er hægt að gera sér til skemmtunar í þessum bæ? Í síðustu Dagskrá sem kom út var auglýst Páskafjör á Austurlandi. Allt í lagi maður var spenntur að lesa hvað væri að gerast á Egilsstöðum heil opna í skránni með allskonar skemmtunum niður á fjörðum, böllum með meiru. En nei það eina sem stendur í boði hér er að fara í Kirkju og vera við messu!!! meira að segja 2 messur!!. Já til hamingju Egilsstaðir ég get bara ekki sagt annað. Eini pöbbinn hérna auglýsti ekki einu sinni að það væri opið! Þessu verður bara að fara að breyta, vekja djammið hér aftur til lífs hvernig sem við förum nú að því... hmmm. Aðalgatan í bænum er orðin ónýt svo stórar holur eru komar í götuna að maður þarf að vanda sig við að sviga fram hjá þeim.. alveg kominn tími á að fara að laga þetta. En jæja yfir í aðra sálma, ég er með Hjört yfir páskana við ætlum að gera eitthvað geggjað saman veit bara ekki alveg hvað.. fórum í Bónus í dag að kaupa páskaegg og fleira. Hjörtur vildi fá páskaegg nr.3 frá Nóa og Siríus ég hélt nú ekki fannst það vera allt of lítið og aumingjalegt þannig ég valdi egg nr.9 frá Freyju og samdi við hann um að ég myndi fá smá af því:) Og í leiðinni að hann mætti alls ekki segja mömmu sinni frá því að hann hefði fengið svona stórt egg. Hann horfði á mig með þannig svip að ég túlkaði hann sem "mæ libs ar síld" svo að hún fréttir þetta ekkert heheh.
Benninn með haglarann í bílnum kveður...

þriðjudagur, mars 21, 2006

Dagur 5 í mottukeppninni

Já það má með sanni segja að andlit mitt og eflaust allra þátttakenda sé farið að láta á sjá vegna óvenjulegs skeggvaxtar á efri vör, já góðir hálsar mottan er mætt... ussp ussp (mottuhljóðið). Ef þið vitið ekki hvað mottuhljóðið er þá er það þegar eitthvað t.d rjómi verður eftir í mottunni og maður sýgur hann af með neðri vörinni þá kemur svona ussp hljóð :) En fyrsti fundurinn var haldinn á Hetjunni síðastliðið föstudagskvöld, mæting var nú frekar slöpp en fundurinn var þó mjög góðmenntur samt fyrir utan helv... pólverjann sem var með mikil drykkjulæti og leiðindi. Losuðum okkur við hann með því að gefa honum stórann bjór með tvöföldum vodka útí, hann lét sig hverfa fljótlega eftir það glas.. hehehehe. Ég, Trölli og Steinó ákváðum svo í einhverri vitleysu að fara á Reyðarfjörð!! náðum að plata Sigrúni og Tinnu stinnu til að fara með. Það var s.s ágætt fórum á Café Kósý og spiluðum af okkar bestu getu í pool allan tímann(og shit hvað ég sökkaði). Var heima á laugardagskv með Hirti hann var kominn með hita greyið og erum búnir að hanga heima alveg síðan í vægast sagt dvd-glápi dauðans. Hann er nú allur að braggast og segist ætla að mæta galvaskur í leikskólann í fyrramálið til að heilla alla krakkana þar og sérstaklega stelpurnar sem grenjuðu úr sér augun í gær og morgun af því að hann mætti ekki heheh.
Benni kveður í bili alveg stjarfur....ussp!